Fotbolti.net
30.06.23 - 18:31
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Nico Jackson kominn til Chelsea (Staðfest)

Nico Jackson kominn til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er búið að festa kaup á Nicolas Jackson sem kemur úr herbúðum Villarreal, þar sem hann skoraði 12 mörk í 26 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Chelsea borgar rúmt riftunarverð fyrir Jackson, eða 37 milljónir evra, til að fá að dreifa greiðslunum. Það samsvarar um 32 milljónum punda.

Chelsea hefur lengi verið á höttunum eftir góðum sóknarmanni sem gæti leyst vandamál liðsins í markaskorun og vonast þjálfarateymið til að vera búið að finna sinn mann.

Búist er við gríðarlega mikið af breytingum innan herbúða Chelsea, en Jackson er annar leikmaðurinn til að skipta yfir í sumar eftir komu Christopher Nkunku frá RB Leipzig.

Hjá Chelsea mun Jackson berjast við Armando Broja um byrjunarliðssæti, þar sem talið er ólíklegt að Pierre-Emerick Aubameyang, Romelu Lukaku eða David Datro Fofana verði hjá félaginu í haust. 

Kynningarmyndbandið fyrir Jackson má sjá hér fyrir neðan og auðvitað var notast við klassíska hip-hop lagið Ms. Jackson, með dúóinu Outkast.

Jackson gerir átta ára samning við Chelsea, sem gildir til 2031.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.