Ogbene fyrstur inn hjá Luton (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Luton Town er búið að ganga frá félagsskiptum á írska kantmanninum Chiedozie Ogbene, sem kemur á frjálsri sölu frá Rotherham.
Ogbene er hægri kantmaður að upplagi og skoraði hann átta mörk og gaf fjórar stoðsendingar er Rotherham bjargaði sér frá falli úr Championship deildinni á nýliðinni leiktíð
Ogbene er fæddur í Nígeríu en flutti ungur til Írlands og á fjögur mörk í 15 A-landsleikjum.
Ogbene er fyrsti leikmaðurinn sem Luton krækir í fyrir sitt fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Missed our chat with Chieo? ????????
— Luton Town FC (@LutonTown) June 29, 2023
Hear what he said about the boss! ????@EdozieOgbene | #COYH



