Fotbolti.net
30.06.23 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Salernitana festir kaup á Dia (Staðfest) - Á leið til Englands?

Salernitana festir kaup á Dia (Staðfest) - Á leið til Englands?
Canon

Mynd: EPA

Villarreal er búið að staðfesta sölu á Boulaye Dia til Salernitana, þar sem hann átti stórkostlegt tímabil á láni.

Dia átti stóran þátt í að bjarga Salernitana frá falli þar sem hann skoraði 16 mörk og gaf 6 stoðsendingar í 33 leikjum.

Dia vakti mikla athygli á sér bæði innan Ítalíu sem utan landsteinanna og hafa West Ham og Aston Villa verið sterklega orðuð við hann.

Salernitana gæti selt hann í sumar fyrir skjótan hagnað, þar sem kaupákvæðið í lánssamningnum frá Villarreal hljóðaði ekki uppá nema 12 milljónir evra, sem er algjör gjafaprís fyrir svo hæfileikaríkann leikmann. Salernitana er talið vilja fá minnst 25 milljónir til að endurselja.

Dia á skemmtilega sögu að baki, þar sem hann var aðeins áhugamaður í fótbolta þar til fyrir fjórum árum síðan. Hann starfaði sem rafvirki áður en fótboltahæfileikarnir byrjuðu að skína í gegn.

Þá er Villarreal einnig búið að selja miðjumanninn Manu Morlanes til Mallorca, eftir að hafa leikið fyrir félagið á lánssamningi í vetur.

Morlanes er 24 ára og hefur verið að gera flotta hluti á Mallorca.

Salernitana festir kaup á Dia (Staðfest) - Á leið til Englands?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.