Skriniar og Gagliardini farnir frá Inter (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Varnarmennirnir Milan Skriniar og Danilo D'Ambrosio eru búnir að yfirgefa Inter á frjálsri sölu eftir góða tíma hjá félaginu, ásamt miðjumanninum Roberto Gagliardini.
Skriniar er talinn til bestu miðvarða heims um þessar mundir og er að ganga til liðs við Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain.
Hann er 28 ára gamall og hefur spilað 246 leiki á fimm árum hjá Inter, en þar áður lék Skriniar fyrir Sampdoria eftir að hafa alist upp hjá slóvakíska stórveldinu Zilina.
Skriniar er algjör lykilmaður hjá slóvakíska landsliðinu og verður áhugavert að fylgjast með honum takast á við nýja áskorun.
Gagliardini er 29 ára miðjumaður með 190 leiki að baki á sex og hálfu ári hjá Inter. Hann er nokkuð eftirsóttur og gæti endað í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Nottingham Forest er meðal félaga sem hefur verið orðað við hann.
Gagliardini á aðeins sjö landsleiki að baki fyrir Ítalíu enda er samkeppnin um byrjunarliðssæti á miðjunni þar afar hörð.
D'Ambrosio er fjölhæfur varnarmaður sem verður 35 ára í september en hann lék 24 leiki með Inter á nýliðnu tímabili.
Í heildina hefur hann verið hjá félaginu í níu og hálft ár og spilað 285 leiki.
Varnarmennirnir hafa unnið mikilvæga titla saman eins og ítölsku deildina og bikarinn og endað í öðru sæti í Evrópudeildinni og Meistaradeildinni.
Škriniar in ????????
— Inter (@Inter_en) June 30, 2023
????? 246 appearances
?? 11 goals
???? 5 trophies#ForzaInter pic.twitter.com/MSs9XDTDpY
????? 7 seasons
— Inter (@Inter_en) June 30, 2023
? 10,824 minutes
???? 5 trophies @gaglio94 in ?????#ForzaInter pic.twitter.com/aQAmqJcKW0


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images



