Timothy Weah til Juventus (Staðfest)

Weah stóðst læknisskoðun í gær.

Mynd: EPA

Weah stóðst læknisskoðun í gær.

Mynd: EPA
Ítalska stórveldið Juventus er búið að ganga frá kaupum á Timothy Weah, syni goðsagnarinnar George Weah sem er forseti Líberíu í dag.
Juve borgar 12 milljónir evra fyrir Weah, sem er hægri kantmaður að upplagi og hefur spilað 107 leiki á þremur árum hjá franska félaginu Lille.
Weah er aðeins 23 ára gamall en hann er með þrefalt ríkisfang og hefur valið að spila fyrir landslið Bandaríkjanna, þar sem hann var mikilvægur hlekkur í unglingaliðunum og á 31 leik að baki fyrir A-landsliðið.
Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, er talinn vilja nota Weah sem hægri vængbakvörð frekar en kantmann. Þar á hann að fylla í skarðið sem Juan Cuadrado skilur eftir sig.
Tim ? pic.twitter.com/qpUo3KHxFG
— JuventusFC ???????????????? (@juventusfcen) June 29, 2023



