Fotbolti.net
30.07.19 - 22:29
Helga Katrín Jónsdóttir

Kristján: Við áttum ekki skilið að tapa 5-1

Auglýsing
Kristján: Við áttum ekki skilið að tapa 5-1
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur kom sér aftur á toppinn í Pepsi-Max deildinni með 5-1 sigri á Stjörnunni. Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum svekktur eftir leikinn.
"Já ég er svekktur með að tapa en við áttum ekki skilið að tapa 5:1, langt því frá. Við vorum með ágætis frammistöðu á ákveðnum hlutum í leiknum."



"Mér fannst við spila ákveðinn varnarleik mjög vel, sérstaklega ákveðnir leikmenn sem spiluðu mjög vel. Komumst í færi og hefðum getað komist í 1:0 ef við hefðum nýtt það betur." Það sem var illa gert var varnarleikur inni í teig. Við gefum mark 2 og 4. Og mark 2 gerir út um leikinn."



Eftir mikla markaþurrð í síðustu leikjum hjá Stjörnunni skoruðu þær 5 stykki í síðasta leik. Hvað klikkaði í kvöld?

"Við náðum skotunum á markið en Sandra var að verja. Fyrri hálfleikur ágætur en bara hálffæri í seinni hálfleik. Svo fáum við víti og klárum það og hefðum svo átt að fá annað víti í seinustu sókninni."



Stjarnan á leik við Fylki í næstu umferð sem verður leikin 9. ágúst. Er stefnan sett á sigur?



"Jú, það verður gert, alveg eins og við getum. En Fylkir er mikið gervigraslið svo það verður erfitt."



Viðtalið við Kristján má sjá í heild sinni hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.