Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. júlí 2020 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór spilaði ekki í bikarúrslitapi - Sigurganga Bodö/Glimt búin
Arnór Ingvi kom ekki við sögu í bikarúrslitunum.
Arnór Ingvi kom ekki við sögu í bikarúrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfons Sampsted.
Alfons Sampsted.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason sat allan tímann á varamannabekknum hjá Malmö er liðið tapaði gegn Gautaborg í úrslitum sænska bikarsins. Gautaborg vann leikinn eftir framlengingu.

Arnór hefur verið í basli með meiðsli í upphafi tímabils en hann sagði nýverið í samtali við Expressen að hann væri klár í slaginn.

Svekkjandi niðurstaðan fyrir Malmö í dag, en liðið er með tíu stigum meira en Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni. Það gildir þó ekkert þegar í bikarinn er komið.

Bjarni Mark Antonsson lék ekki með Brage sem gerði jafntefli við Akropolis í sænsku B-deildinni. Leikurinn 1-1. Bjarni Mark hefur verið að glíma við meiðsli í upphafi tímabils. Brage fimmta sæti B-deildarinnar með 14 stig úr níu leikjum.

Jafnt hjá Glódísi
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leiktímann fyrir Rosengård sem gerði jafntefli á útivelli gegn Gautaborg í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð. Gautaborg ekki að reynast Íslendingaliðunum í Svíþjóð vel í dag.

Gautaborg komst yfir á 53. mínútu en tólf mínútum síðar jafnaði Rosengård metin. Sænsku meistararnir í Rosengård eru í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, einu stigi minna en topplið Gautaborg.

Mögnuð sigurganga Bodö/Glimt stöðvuð
Það var einnig leikið í Noregi í kvöld og þar var mögnuð tíu leikja sigurganga Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni stöðvuð. Það var Stabæk sem gerði það í 2-2 jafnteflisleik í kvöld. Alfons Sampsted lék að venju allan leikinn fyrir Bodö/Glimt, sem er á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Molde.

Axel Óskar Andrésson var allan tímann á varamannabekknum fyrir Viking er liðið tapaði 3-0 á útivelli fyrir Rosenborg. Viking er í 12. sæti með 11 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner