Páll Sindri Einarsson, miðjumaður Kórdrengja, er á leið til Kára en þetta kom fram í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni í gær.
„Páll Sindri er ekki að fá neinar mínútur frá Kórdrengjum og hann tilkynnti þeim það fyrri viku eða tíu dögum síðan að hann myndi ekki klára tímabilið með þeim. Hann hefur mætt á æfingar með Kára síðan þá," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.
Hinn 27 ára gamli Páll Sindri kom til Kórdrengja síðastliðið haust eftir að hafa spilað með Vestra í fyrra.
Páll Sindri þekkir vel til hjá Kára því hann spilaði með liðinu 2014-2018 fyrir utan árið 2015 þegar hann lék með Tindastóli.
Árið 2018 skoraði Páll Sindri átta mörk í fjórtán leikjum í 2. deildinni með Kára.
Kórdrengir og Kári spila bæði í 2. deildinni. Kórdrengir eru í 2. sæti með 17 stig en Kári er í 8. sæti með 11 stig.
Hér að neðan má hlusta á Ástríðuna.
Athugasemdir