Fotbolti.net
30.07.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Boothroyd tekinn við liði á Indlandi (Staðfest)

Boothroyd tekinn við liði á Indlandi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Indverska félagið Jamshedpur FC er búið að ráða Aidy Boothroyd sem aðalþjálfara eftir sjö ár hjá yngri landsliðum Englands.

Boothroyd hefur stýrt U19, U20 og U21 landsliðum Englendinga og undanfarin fimm ár hefur hann verið við stjórnvölinn hjá U21, án þess að ná sérstökum árangri.

Boothroyd stýrði meðal annars Coventry og Northampton áður en hann fékk starfið hjá U21 landsliði Englands.

Boothroyd er 51 árs gamall og er ekki hátt skrifaður í heimalandinu þrátt fyrir að hafa sinnt mikilvægum störfum síðustu átta ár. 

Jamshedpur endaði í efsta sæti indversku deildarinnar en tapaði svo í undanúrslitaleik í úrslitakeppni um titilinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.