Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 30. júlí 2022 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Xavi vill fá Messi aftur til Barca
Mynd: EPA

Xavi Hernandez, fyrrum miðjumaður og núverandi þjálfari Barcelona, vill ólmur fá góðvin sinn og fyrrum liðsfélaga til margra ára Lionel Messi aftur til félagsins.


Messi er 35 ára gamall og leikur fyrir Paris Saint-Germain og er samningsbundinn Frakklandsmeisturunum í eitt ár í viðbót með möguleika á eins árs framlengingu eftir það.

Messi á ótrúlegan feril að baki með Barcelona þar sem hann skoraði 672 mörk í 778 leikjum fyrir félagið. Xavi vonast til að kafli Messi sem leikmaður Barca sé ekki búinn

„Ég hefði kosið að halda Messi hjá félaginu þegar hann fór. Mér finnst eins og hann eigi skilið að spila aftur með Barcelona og ég óska þess að hann muni snúa aftur. Það væri æðislegt að hafa Messi í leikmannahópnum," sagði Xavi.


Athugasemdir
banner
banner
banner