Fotbolti.net
30.07.23 - 10:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jay-Z að undirbúa tilboð í Tottenham

Tónlistarmaðurinn Jay-Z og Chris Martin söngvari Coldplay á Arsenal leik

Tónlistarmaðurinn Jay-Z og Chris Martin söngvari Coldplay á Arsenal leik

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade

Slúðurpakki dagsins er tekinn saman af BBC af öllum helstu miðlum heims.

Liverpool er í viðræðum við PSG um að fá Kylian Mbappe á láni eftir að þessi 24 ára gamli framherji hafnaði heimsmets tilboði frá Al-Hilal. (Mirror)

Real Madrid býður ekki hærra en 230 milljónir evra í Mbappe í sumar. (Marca)

Liverpool er áfram í viðræðum við Southampton um kaup á Romeo Lavia (19) eftir að 38 milljón punda tilboði félagsins var hafnað. (Liverpool Echo)

Tónlistarmaðurinn Jay-Z er að undirbúa tilboð í Tottenham ef Joe Lewis eigandi félagsins er fundinn sekur um fjársvik. (Sunday Express)

Bayern Munchen er staðráðið í því að næla í Harry Kane, 30, áður en félagaskiptaglugginn lokar. (Sky Sports)

Atalanta hefur hafið viðræður við Nottingham Forest um kaup á Emmanuel Dennis, 25, framherja enska liðsins. (Nicolo Schira)

Erik ten Hag stjóri Man Utd verður að endurhugsa plönin að selja Scott McTominay, 26, eftir að miðjumaðurinn ungi Kobbie Mainoo, 18, meiddist í æfingaferð liðsins til Bandaríkjana á dögunum. (Telegraph)

West Ham mun líklega ekki gera annað tilboð í Harry Maguire, 30, því verðmiðinn og launakröfurnar eru of miklar. (Sunday Mirror)

Sofyan Amrabat miðjumaður Fiorentina bíður eftir að fá tilboð frá Manchester United. Hann er hins vegar tilbúinn að bíða þar til í janúar eða næsta sumar til að ganga til liðs við Barcelona. (Sport)

Aston Villa íhugar að næla í Adama Traore, 27, sem er laus á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Wolves. (Football Insider)

Liverpool mun ekki fá 7.5 milljónir punda í aukagreiðslur fyrir Sadio Mane ef hann yfirgefur Bayern til að ganga til liðs við sádí arabíska liðið Al-Nassr. (Mail)

Aymeric Laporte, 29, mun yfirgefa Man City ef félagið nær í Josko Gvardiol, 21, frá RB Leipzig. (Manchester Evening News)

Paris SG hefur hafnað því að selja Marquinhos, 29, það er áhugi frá Al-Nassr. (RMC)

West Ham og Roma hafa komist að samkomulagi og mun Gianluca Scamacca fara til Ítalíu á láni en Roma getur svo keypt hann fyrir 19 milljón punda eftir tímabilið. (Calciomeracto)

Aston Villa heldur áfram að reyna ná í Ferran Torres, 23, frá Barcelona en launakröfurnar hans virðast of háar fyrir enska liðið. (Sport)

James Rodriguez verður kynntur sem leikmaður Sao Paulo á sunnudaginn en þessi kólumbíski leikmaður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Olympiakos. (Vene Casagrande)

Southampton hefur samþykkt 17 milljón punda tilboð Monaco í Mohammed Salisu, 24. (Mail)

Jay-Z að undirbúa tilboð í Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Jay-Z að undirbúa tilboð í Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.