Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. október 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keown ósáttur með umtalaða færslu Mourinho: Svolítið barnalegt
Mourinho á hliðarlínunni í gærkvöldi.
Mourinho á hliðarlínunni í gærkvöldi.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var eðlilega ekkert rosalega sáttur við frammistöðu sinna lærisveina eftir tap þeirra gegn Antwerp á útivelli í Evrópudeildinni. Antwerp vann leikinn 1-0 og Tottenham átti ekki skot á mark gestanna síðustu 70 mínútur leiksins.

Sjá einnig:
Mourinho hefði viljað gera 11 skiptingar - Þolinmæðin í garð Alli á þrotum?

„Fyrir slæmar frammistöður áttu skilið slæm úrslit. Vonandi eru allir í þessari rútu jafn ósáttir og ég er. Á morgun klukan 11 er æfing," skrifaði Mourinho við Instagram færslu eftir leikinn í gær.

Martin Keown, fyrrum leikmaður Arsenal, var sérfræðingur í útsendingu BT Sport frá Evrópudeildinni í gær. Keown var á því að Mourinho ætti ekki að setja inn færslur af þessu tagi. „Ég er ekki ánægður með að Mourinho birti svona fyrir almenning til að sjá. Geymdu þetta fyrir búningsklefann. Er þetta leiðin til að koma skilaboðum áfram [í gegnum Instagram]? Ef þú ætlar að koma til skilaboðum til mín segðu það þá við mig persónulega," sagði Keown.

„Haltu þessu innanhús, þetta er svolítið barnalegt. Leikmenn þurfa að halda sér saman en hann getur sagt hvað sem hann vill opinberlega. Ég myndi halda þessu fyrir búningsherbergið. Ég er ekki viss um að þetta sé hollt," bætti Keown við.



Athugasemdir
banner
banner
banner