Aðstoðarþjálfari HK lætur af störfum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK tilkynnti í dag að aðstoðarþjálfari meistarafokks karla, Kári Jónasson, hefði látið af störfum. Í tilkynningunni kemur fram að það sé vegna anna í vinnu.
„Kári hefur þjálfað hjá félaginu síðan haustið 2020 þegar hann tók við 2. flokki karla hjá félaginu. Síðasta sumar kom hann svo í teymi meistaraflokks þegar Ómar Ingi tók við meistaraflokki félagsins og aðstoðaði hann sumarið 2022 og svo aftur á nýloknu tímabili."
„HK vill þakka Kára kærlega fyrir sín störf fyrir félagið á undanförnum árum," segir í tilkynningunni.
Kári var ásamt Birki Erni Arnarssyni, Jóni Stefáni Jónssyni og Sandor Matus í teymi með Ómari Inga Guðmundssyni sem stýrði liðinu.
Jón Stefán hefur einnig látið af störfum. Hann var í eitt ár hjá HK sem leikgreinandi, afreksþjálfari og aðstoðarmaður þjálfara meistaraflokkanna.