Fotbolti.net
30.10.23 - 11:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John van 't Schip tekur við botnliði Ajax út tímabilið (Staðfest)

John van 't Schip.

John van 't Schip.

Canon

Mynd: Ajax

Ajax hefur ráðið John van 't Schip sem nýjan þjálfara aðalliðsins en hann gerir samning við félagið út næstkomandi keppnistímabil.
Van 't Schip mun stýra Ajax út tímabilið en næsta sumar tekur hann svo við starfi á bak við tjöldin.

Van 't Schip var leikmaður Ajax frá 1981 til 1992 en hann spilaði eftir það með Genoa á Ítalíu. Eftir að leikmannaferlinum lauk þá hóf hann að þjálfa hjá Ajax. Hann þjálfaði fyrst unglingaliðið og tók svo við sem aðstoðarþjálfari aðalliðsins.

Hann hefur á síðustu árum þjálfað í Ástralíu, í Mexíkó og í Hollandi. Hann stýrði síðast gríska landsliðinu.

Núna tekur hinn 59 ára gamli Van 't Schip í fyrsta sinn við sem aðalþjálfari Ajax en hann hefur svo sannarlega verk að vinna þar sem Ajax er á botni hollensku úrvalsdeildarinnar. Árangurinn hingað til á tímabilinu hefur verið hræðilegur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.