Fotbolti.net
30.10.23 - 16:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Marc McAusland í ÍR (Staðfest)

Marc McAusland.

Marc McAusland.

Canon

Mynd: ÍR

Lengjudeildin
Skoski varnarmaðurinn Marc McAusland hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍR.
McAusland yfirgaf Njarðvík eftir síðustu leiktíð þegar samningur hans þar rann út.

Njarðvík fékk McAusland frá Grindavík fyrir þremur árum en síðan þá hefur hann spilað 105 leiki og skorað 19 mörk, þrátt fyrir að leika stöðu miðvarðar.

Leikmaðurinn hefur iðulega borið fyrirliðabandið í leikjum Njarðvík og sinnt öllum hlutverkum innan félagsins með sóma, bæði sem leikmaður og þjálfari yngri flokka.

Núna mætir hann í Breiðholtið en ÍR-ingar verða nýliðar í Lengjudeildinni næsta sumar.

„Mér líður vel og ég hlakka til að byrja. Þetta er nýtt og ferskt fyrir mig. Félagið sýndi mér mikinn áhuga. Ég hef áður unnið með Jóa og ég naut þess mikið," sagði McAusland.

Hann hefur einnig spilað með Keflavík og Grindavík á sínum ferli, en fer núna í neðra Breiðholtið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.