Fotbolti.net
30.10.23 - 20:29
Ívan Guðjón Baldursson

QPR ræður þjálfara Hammarby (Staðfest)

QPR ræður þjálfara Hammarby (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að enska Championship-félagið Queens Park Rangers er nálægt því að krækja í Martí Cifuentes, þjálfara Hammarby í sænska boltanum.
Hammarby gerði jafntefli við Sirius í dag og er í sjötta sæti sænsku deildarinnar, með 42 stig úr 28 umferðum. Hann tók við félaginu fyrir síðustu leiktíð og stýrði því til þriðja sætis - þar sem liðið fékk 56 stig úr 30 leikjum og tryggði sér þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Hammarby tapaði naumlega fyrir Alfons Sampsted og félögum í FC Twente og datt úr leik í forkeppninni. Jón Guðni Fjóluson er samningsbundinn Hammarby en hefur tekið lítinn þátt vegna erfiðra meiðsla.

Cifuentes er 41 árs gamall Spánverji sem stýrði Sandefjord í Noregi og AaB í Danmörku áður en hann tók við Hammarby í janúar í fyrra.

Cifuentes tekur við stjórnartaumunum eftir að Gareth Ainsworth var rekinn frá QPR, en liðið er aðeins komið með 8 stig eftir 14 umferðir á nýju tímabili. QPR hefur ekki sigrað fótboltaleik síðan 2. september - heldur tapað sjö leikjum og gert tvö jafntefli.

Uppfært: QPR hefur staðfest fregnirnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.