Fotbolti.net
30.10.23 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skarphéðinn tekur við kvennaliði ÍA (Staðfest)

Skarphéðinn tekur við kvennaliði ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍA

Hertz
Skarphéðinn Magnússon hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag.

Hann tekur við liðinu af Magneu Guðlaugsdóttur sem hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár. Undir hennar stjórn fór liðið upp úr 2. deild í sumar og verður í Lengjudeildinni næsta sumar.
Skarphéðinn er 34 ára, lék sem markvörður á sínum ferli og lék þrjá leiki með U16. Hans síðustu leikir voru með ÍA í Lengjubikarnum árið 2018.

Tilkynning ÍA
Skarphéðinn hefur verið einn af megin máttarstólpum félagsins til margra ára. Hann mun leiða liðið inn í næsta tímabil í Lengjudeildinni.

Skarphéðinn hefur þjálfað hjá ÍA undanfarin 10 ár, hann er vel menntaður og reynslumikill þjálfari. Erum við afar ánægð með þetta skref og væntum mikils af honum.

Skarphéðinn mun einnig sinna teymisstjórn 8 manna bolta ásamt því að koma að þjálfun yngri flokka.

Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna samanstendur af Skarphéðni, Aldísi Ylfu Heimisdóttur og Þorsteini Magnússyni.

Knattspyrnufélag ÍA þakkar Magneu fyrir sitt framlag til félagsins undanfarin ár en hún hefur látið af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Hún náði góðum árangri og kom liðinu upp í Lengjudeildina í sumar en hefur nú snúið til annarra verkefna og óskum við henni alls góðs.
Skarphéðinn tekur við kvennaliði ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.