Todor Hristov hættur með ÍBV (Staðfest)

Todor Hristov verður ekki þjálfari ÍBV áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er ljóst að það verða þjálfaraskipti hjá ÍBV í vetur því Todor Hristov er hættur að þjálfa kvennalið félagsins.
ÍBV staðfesti þetta í tilkynningu í dag en Hristov mun halda áfram að starfa fyrir félagið þar sem hann verður þjálfari 2. flokks karla á næstu leiktíð.
Hristov tók við liði ÍBV af Jonathan Glenn fyrir ári síðan en hafði áður þjálfað hjá yngri flokkum félagsins í tvö ár.
Hann gerði þriggja ára samning við ÍBV 4. nóvember í fyrra en nú er ljóst að nýr þjálfari tekur við í vetur.
ÍBV féll úr Bestu-deildinni í sumar en liðið endaði í næst neðsta sæti með 21 stig eftir að hafa tapað lokaleik mótsins gegn Tindastóli 7-2.
Tilkynning ÍBV
Fyrir skömmu, var sameiginleg ákvörðun tekin á milli knattspyrnudeildar ÍBV og Todor Hristov, að Todor myndi láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna.
Knattspyrnudeild ÍBV vill koma á framfæri miklum þökkum til Todors fyrir hans mikilvægu störf í þágu kvennaknattspyrnunnar í Vestmannaeyjum.
Todor tekur nú við öðrum verkefnum hjá ÍBV Íþróttafélagi. Hann mun meðal annars vera þjálfari 2.flokks karla á næsta tímabili sem er mikið fagnaðarefni fyrir félagið.
Það er trú félagsins að Todor leggi þann mikla metnað sem í honum býr í þau verkefni sem framundan eru.