Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 30. nóvember 2021 13:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Rúnar að ganga í raðir ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar Bjarnason er að ganga í raðir ÍBV samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Fótbolti.net ræddi við Andra Rúnar í dag en hann kvaðst ekki geta staðfest neitt að svo stöddu.

Samkvæmt heimildum höfðu Breiðablik og FH einnig áhuga á sóknarmanninum en hann endaði á því að velja ÍBV.

Sjá einnig:
Staðfestir viðræður við Andra Rúnar

Andri er 31 árs sóknarmaður sem leikið hefur erlendis síðustu ár. Eftir að hafa jafnað markametið í efstu deild á Íslandsi sumarið 2017 með Grindavík hélt hann til Svíþjóðar og samdi við Helsingborg. Næst fór hann til Þýskalands og spilaði með Kaiserslautern en nú er hann hjá Esbjerg í Danmörku.
Athugasemdir
banner
banner