Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   þri 31. janúar 2017 14:20
Magnús Már Einarsson
Tvífari Sergio Ramos til Southampton (Staðfest)
Líkur Sergio Ramos.
Líkur Sergio Ramos.
Mynd: Southampton
Southampton hefur fengið markvörðinn Mouez Hassen á láni frá Nice út tímabilið.

Hinn 21 árs gamli Hassen er mjög líkur Sergio Ramos, varnarmanni Real Madrid, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Hassen er efnilegur markvörður en hann á 14 leiki að baki með U21 árs landsliði Frakka.

Hassen spilaði meðal annars í 3-2 tapi Frakka gegn íslenska U21 árs landsliðinu á Kópavogsvelli í september 2015.

Hjá Southampton á Hassen að vera varamarkvörður fyrir Fraser Forster þar sem Alex McCarthy er frá keppni.
Slapp
banner
banner