Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 31. janúar 2020 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton kaupir Lamptey frá Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Brighton er búið að festa kaup á Tariq Lamptey, efnilegum varnarmanni Chelsea og enska U20 landsliðsins.

Lamptey, sem er 19 ára, hefur komið við sögu í einum deildarleik og tveimur bikarleikjum á tímabilinu. Samningur hans við Chelsea hefði runnið út næsta sumar og ákvað félagið að selja hann til að missa hann ekki á frjálsri sölu.

Kaupverðið er óuppgefið en það er talið nema um 4 milljónum punda, auk árangurstengdra aukagreiðslna.

Lamptey er annar táningurinn sem yfirgefur Chelsea á gluggadegi eftir að Clinton Mola gekk í raðir Stuttgart.
Athugasemdir
banner
banner
banner