Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 10:34
Elvar Geir Magnússon
Cedric Soares til Arsenal (Staðfest)
Cedric Soares.
Cedric Soares.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið portúgalska bakvörðinn Cedric Soares á lánssamningi frá Southampton.

Þessi 28 ára leikmaður hefur leikið yfir 100 leiki fyrir Southampton síðan hann kom til félagsins 2015.

Cedric hóf feril sinn hjá portúgalska félaginu Sporting Lissabon.

Kieran Tierney er í langtíma meiðslum og þá hefur Hector Bellerín einnig verið að glíma við meiðsli. Mikel Arteta vildi því fá inn bakvörð fyrir baráttuna framundan.


Athugasemdir
banner
banner
banner