Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 13:17
Elvar Geir Magnússon
Richairo Zivkovic til Sheffield United (Staðfest)
Richairo Zivkovic.
Richairo Zivkovic.
Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur fengið hollenska sóknarmanninn Richairo Zivkovic, fyrrum U21 landsliðsmann Hollands.

Á heimasíðu Sheffield United er leikmanninum lýst sem hröðum markaskorara.

Leikmaðurinn kemur á láni frá Changchun Yatai í Kína út tímabilið en Sheffield á möguleika á að kaupa hann næsta sumar.

Zivkovic er 23 ára og var á sínum tíma í herbúðum Ajax.

Hann hefur skorað 15 mörk í 25 leikjum fyrir Changchun Yatai.


Athugasemdir
banner
banner