Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. janúar 2020 18:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steven Nzonzi til Rennes (Staðfest)
Nzonzi lék eitt sinn á Englandi með Stoke og Blackburn.
Nzonzi lék eitt sinn á Englandi með Stoke og Blackburn.
Mynd: Getty Images
Steven Nzonzi hefur gengið til liðs við Rennes í frönsku úrvalsdeildinni.

Nzonzi hefur verið í láni frá Roma hjá Galatasaray í Tyrklandi, en hann var ekki lengur inn í myndinni hjá Galatasaray eftir að honum lenti saman við Fatih Terim, þjálfara, á æfingasvæðinu.

Hann var orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina. West Ham og Everton höfðu áhuga á honum, en nú er það ljóst að hann fer ekki aftur til Englands þar sem hann lék áður fyrr með Blackburn og Stoke.

Nzonzi klárar tímabilið í Frakklandi hjá Rennes, sem er sem stendur í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Frekar óvænt það.
Athugasemdir
banner
banner