Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 22:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wickham til Sheffield Wednesday (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Connor Wickham hefur yfirgefið Crystal Palace og er búinn að semja við Sheffield Wednesday á láni út leiktíðina.

Þetta er í þriðja skiptið sem hinn 26 ára gamli Wickham fer á láni til Sheffield Wednesday. Hann fór þangað fyrst í febrúar 2013, og svo aftur í nóvember það sama ár.

Þegar hann var hjá Sheffield Wednesday 2013/14 tímabilið skoraði hann átta mörk í 11 leikjum.

Meiðsli hafa leikið Wickham grátt á hans ferli.

Á þessu tímabili hefur hann skorað eitt mark í sex úrvalsdeildarleikjum. Hann fer til Sheffield Wednesday í von um meiri spiltíma.

Sheffield Wednesday er í 12. sæti Championship-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner