Fotbolti.net
31.01.21 - 17:00
Victor Pálsson

Sonur Pochettino samdi við Watford (Staðfest)

Sonur Pochettino samdi við Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty

Maurizio Pochettino, sonur Mauricio Pochettino, hefur skrifað undir samning við Watford í ensku Championship-deildinni.
Um er að ræða efnilegan 19 ára gamlan leikmann sem hefur lengi verið í akademíu Tottenham.

Það var Mauricio sem fékk son sinn til Tottenham en hann var síðar rekinn frá félaginu árið 2019.

Pochettino yngri hefur aldrei spilað með aðalliði Tottenham en hann getur spilað bæði á vinstri og hægri væng.

Vonandi fyrir hann verða tækifærin fleiri hjá Watford sem reynir að komast upp í úrvalsdeild á ný.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.