Fotbolti.net
31.01.22 - 20:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frír Aubameyang - Hver er pælingin?

Pierre-Emerick Aubameyang.

Pierre-Emerick Aubameyang.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang er við það að fá félagaskipti yfir til Barcelona.
Arsenal og Barcelona hafa verið í viðræðum í allan dag, og náðist loks samkomulag seint í kvöld.

Samkvæmt Mirror, þá er kaupverðið ekkert; Aubameyang fer til Barcelona á frjálsri sölu. Það sem Arsenal græðir á þessu er að félagið losnar við launakostnað Aubameyang, sem er virkilega hár. Hjá Arsenal er Aubameyang með 350 þúsund pund í vikulaun á samningi sem gildir til 2023.

Aubameyang mun taka á sig verulega launalækkun til að ganga í raðir Barcelona, sem er í miklum fjárhagsvandræðum.

Af hverju vill Arsenal losna við hann?
Það er ljóst að Arsenal hefur mikinn áhuga á því að losna við leikmanninn. Eins og áður segir, þá mun félagið spara mikinn pening í launakostnað við það að losa sig við hann.

En það er meira að baki. Frá því að Mikel Arteta tók við, þá hefur sóknarmaðurinn oftar en einu sinni brotið agareglur. Hann missti fyrirliðabandið hjá liðinu undir lok síðasta árs þegar hann mætti of seint heim úr ferðalagi. Hann virðist ekki hafa verið að hafa góð áhrif á menn í búningsklefanum með hegðun sinni.

Frammistaða hans á vellinum hefur heldur ekki verið góð upp á síðkastið, alls ekki. Hann er mögulega bara kominn yfir hæðina á sínum ferli, hann er orðinn 32 ára.

Það er kannski bara best fyrir Arsenal að losa sig við hann núna þegar tækifærið býðst, í staðinn fyrir að bíða í eitt og hálft ár í viðbót. Fara þá að þróa aðra leikmenn og byggja liðið upp á öðrum.

Ekki góður félagaskiptagluggi fyrir félagið
Það er ekki hægt að segja að þetta sé góður félagaskiptagluggi fyrir Arsenal. Félagið er búið að leyfa Folarin Balogun, Ainsley Maitland-Niles, Pablo Mari, Sead Kolasinac, Calum Chambers og Aubameyang. Inn hafa komið tveir leikmenn úr MLS-deildinni, sem munu ekki einu sinni koma fyrr en eftir tímabilið.

Það er ekki útlit fyrir að Arsenal muni fá inn leikmann fyrir gluggalok; ekki góður gluggi fyrir félag sem er að berjast um Meistaradeildarsæti.
Er á leið til Barcelona.

Er á leið til Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.