Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna - KR heldur áfram að raða inn mörkum
Eyjamenn eru komnir með fyrsta sigurinn
Eyjamenn eru komnir með fyrsta sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðar skoraði tvö
Aron Sigurðar skoraði tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan vann frábæran endurkomusigur á Þór. Emil Atlason gerði annað mark liðsins
Stjarnan vann frábæran endurkomusigur á Þór. Emil Atlason gerði annað mark liðsins
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
ÍBV vann sinn fyrsta leik í Bestu deild karla á þessu tímabili með stæl er liðið pakkaði Keflavík saman, 6-1, á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í kvöld. KR-ingar unnu áttunda leik sinn í deildinni er liðið mætti KA og þá fögnuðu Stjörnumenn endurkomusigri á Þór á Akureyri.

Eyjamenn höfðu aðeins náð í tvö stig fyrir leikinn gegn Keflavík, en þeir voru ákveðnir í landa fyrsta sigrinum í dag.

Róbert Elís Hlynsson skoraði með skalla á 14. mínútu eftir fyrirgjöf frá Bjarka Birni Gunnarssyni og rúmum tuttugu mínútum síðar bætti Halldór Jón Sigurður Þórðarson við öðru. Alex Freyr Hilmarsson átti góða sendingu inn á Halldór sem kláraði snyrtilega framhjá Ásgeiri Orra Magnússyni í markinu.

Sanngjörn 2-0 forysta í hálfleik og bættu þeir við tveimur mörkum á þremur mínútum í upphafi síðari hálfleiks. Aftur var það Bjarki Björn með listir á hægri vængnum, kom boltanum á Alex Frey sem setti boltann í netið og síðan lagði Bjarki upp þriðja mark sitt í leiknum er hann fékk boltann aftur eftir hornspyrnu og setti hann á nærsvæðið á Milan Tomic sem stangaði hann í netið.

Hálftíma fyrir leikslok vildu Eyjamenn fá vítaspyrnu er Róbert Elís éll í teignum en fengu ekki og í kjölfarið minnkuðu Keflvíkingar muninn með marki frá Muhamed Alghoul eftir fyrirgjöf Breka Baxter.

Eyjamenn voru áfram hungraðir í fleiri mörk og kom fimmta markið tuttugu mínútum fyrir leikslok. Viggó Valgeirsson kom boltanum á Róbert Elís sem gerði annað mark sitt í leiknum. Varamaðurinn Omar Sowe fullkomnaði flugeldasýninguna með marki í endurkomu sinni og það eftir fjórðu stoðsendingu Bjarka í leiknum.

Þetta reyndist síðasta mark leiksins. Stórkostleg frammistaða Eyjamanna sem eru komnir með fyrsta sigurinn og nú með fimm stig í næst neðsta sæti, en Keflavík í 7. sæti með 11 stig.

Átta marka leikur í Vesturbæ

KR-ingar unnu áttunda sigurinn er liðið marði 5-3 sigur á KA á Meistaravöllum.

Aron Sigurðarson kom KR yfir á 5. mínútu leiksins. Arnór Ingvi Traustason átti flottan bolta á Eið Gauta Sæbjörnsson sem skallaði hann fyrir Aron sem var aleinn og ekki í vandræðum með að setja boltann í netið.

KA-menn sofnuðu á verðinum á 17. mínútu leiksins er Eiður Gauti bætti við öðru marki KR. Stuttu áður hafði Arnór Ingvi fengið fast skot í hausinn og var skipt af velli stuttu síðar.

Á lokasekúndum fyrri hálfleiks gerði Luke Rae þriðja markið. Steinþór Már Auðusson varði skot frá Aroni og út á Luke sem skoraði með laglegu skoti.

Jakob Snær Árnason kom KA inn í leikinn á 63. mínútu. Hallgrímur Mar Steingrímsson átti skot úr aukaspyrnu sem Halldór Snær Georgsson varði, boltinn skoppaði á Jakob sem átti bakfallsspyrnu og rétt náði að leka boltanum inn.

KR-ingar vildu drepa leikinn og töldu þeir sig hafa gert það þegar Aron skoraði laglegt aukaspyrnumark tæpum tuttugu mínútum fyrir leikslok.

KA svaraði með tveimur mörkum á tæpum tveimur mínútum og gerði þetta að leik. Birgir Baldvinsson slapp í gegn og skoraði áður en Markús Máni Pétursson minnkaði forystu KR-inga niður í eitt mark með skalla eftir hornspyrnu.

Jeppe Pedersen var nálægt því að jafna leikinn á 88. mínútu er hann skaut frábæru skoti fyrir utan teig en Halldór átti stórkostlega markvörslu. Þá vildu gestirnir fá vítaspyrnu er Jakob féll í teignum, en Arnar Þór Stefánsson, dómari leiksins, gaf lítið fyrir það og áfram hélt leikurinn.

Varamaðurinn Galdur Guðmundsson tryggði KR-ingum sigurinn undir lok leiks með föstu skoti í fjærhornið. Léttir fyrir KR sem var næstum því búið að tapa unnum leik á lokamínútunum.

Áttundi deildarsigur KR-inga staðreynd sem eru komnir upp að hlið Víkings á toppnum með 25 stig á meðan KA er í 8. sæti með 10 stig.

Endurkoma hjá Stjörnunni

Stjörnumenn unnu 3-1 endurkomusigur á Þór á VÍS-vellinum á Akureyri.

Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði með alvöru neglu eftir hornspyrnu Atla Sigurjónssonar á 8. mínútu. Þórsarar urðu fyrir áfalli nokkrum mínútum síðar er Atli þurfti að fara af velli vegna meiðsla.

Færin voru á báðum endum vallarins síðustu tíu mínúturnar og mikið fjör, en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.

Í þeim síðari komu Stjörnumenn til baka. Daníel Finns Matthíasson skoraði með hörkuskoti úr aukaspyrnu. Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórsara, var í skotinu, en náði ekki að koma í veg fyrir að boltinn færi inn.

Jafnræði var með liðunum áður en Emil Atlason kom með gæðin. Guðmundur Kristjánsson átti langan bolta sem Yann Emmanuel Affi skallaði á Emil. Hann lagði boltann fyrir framan sig og smellhitti hann. Stórkostlegt mark.

Christian Greko Jakobsen, leikmaður Þórs, sá rauða spjaldið á 78. mínútu. Hann henti sér niður í teignum og vildi fá víti eftir viðskipti sín við Guðmund sem hreytti einhverju í hann. Greko fór höfuð í höfuð og uppskar rauða spjaldið.

Stjörnumenn nýttu sér liðsmuninn og náðu að innsigla sigurinn undir lokin. Haukur Örn Brink skoraði eftir að Stjörnumenn komust í þrír á einn stöðu. Arnar Breki Björnsson kom boltanum á Hauk sem setti boltann framhjá Ásbirni Líndal Arnarssyni áður en hann skoraði.

Lagleg endurkoma hjá Stjörnunni sem er með 10 stig í 9. sæti en Þór með 6 stig í 10. sæti.

ÍBV 6 - 1 Keflavík
1-0 Róbert Elís Hlynsson ('14 )
2-0 Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('39 )
3-0 Alex Freyr Hilmarsson ('49 )
4-0 Milan Tomic ('52 )
4-1 Muhamed Alghoul ('61 )
5-1 Róbert Elís Hlynsson ('67 )
6-1 Omar Sowe ('85 )
Lestu um leikinn

KR 5 - 3 KA
1-0 Aron Sigurðarson ('5 )
2-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('17 )
3-0 Luke Morgan Conrad Rae ('45 )
3-1 Jakob Snær Árnason ('63 )
4-1 Aron Sigurðarson ('74 )
4-2 Birgir Baldvinsson ('82 )
4-3 Markús Máni Pétursson ('83 )
5-3 Galdur Guðmundsson ('91 )
Lestu um leikinn

Þór 1 - 3 Stjarnan
1-0 Ágúst Eðvald Hlynsson ('8 )
1-1 Daníel Finns Matthíasson ('51 )
1-2 Emil Atlason ('63 )
1-3 Haukur Örn Brink ('91 )
Rautt spjald: Christian Jakobsen, Þór ('78) Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner
banner
banner