Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
   sun 31. maí 2026 17:15
Ívar Björgvinsson
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR tók á móti Vestra í 7. umferð Lengjudeildar karla í dag. Fótbolti.net ræddi við Jóhann Birni, þjálfara ÍR eftir leikinn.


Lestu um leikinn: ÍR 0 -  1 Vestri

„Þetta var ótrúlega svekkjandi tap. Ef maður súmmerar þennan leik upp þá mætum við ekki til að halda hreinu, það er ljóst, við mætum til að sækja sigurinn og erum nánast með boltann allan leikinn. Þeir bakka bara og breaka á okkur og þurfa varla að skapa sér færi til að vinna okkur 0-1.''

ÍR voru töluvert meira með boltann í dag en tapa samt sem áður 0-1. Hvað fannst Jóhanni það helsta sem vantaði upp á hjá sínum mönnum?

„Við erum að skapa okkur margar góðar stöður en síðan kemur bara síðasta sendingin og hún er ekki nógu góð. Það sem er að tapa þessum leik, bæði hér í dag og gegn Ægi, er það að við erum búnir að vera alveg ömurlegir í lykilmómentum leiksins, fyrir framan okkar eigið mark og svo fyrir framan mark andstæðinganna. Það vantar bara þetta drápseðli í okkur og það er það sem maður er mest svekktur með.''

Nú eru Breiðhyltingarnir búnir að leika 7 leiki og eru einungis með 7 stig. Hvernig metur Jóhann þessa byrjun í mótinu?

„Frammistöðulega séð hefur byrjunin verið fín en stigalega séð hefur hún ekki verið góð. Svo vantar bara að það sé smá töggur í manni og að við þorum að vinna leikina. Það eru allir leikir mikilvægir í þessari deild og við erum bara að sogast í fallbaráttu og það er grafalvarlegt fyrir okkur.''


Slapp
banner
banner
banner