Fotbolti.net
20.06.26 - 23:37
Brynjar Ingi Erluson

Raphinha verður ekki með gegn Skotum

Raphinha verður ekki með gegn Skotum
Canon

Mynd: EPA

Raphinha, leikmaður Barcelona, verður ekki með Brasilíu gegn Skotlandi í lokaumferð riðlakeppninnar á HM.
Vængmaðurinn fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 3-0 sigri Brasilíu á Haítí í nótt.

Hann glímir við vöðvameiðsli í hægra læri, en þetta kemur fram í tilkynningu frá brasilíska fótboltasambandinu.

Raphinha fer nú í meðferð og verður áfram með brasilíska hópnum á HM. Vonir standa til að hann nái sér fyrir síðari stig mótsins.

Eitt er þó víst: Hann verður ekki með gegn Skotum í lokaumferð riðlakeppninnar. Það er áfall fyrir Brasilíumenn, sem þurfa enn að ná í úrslit til að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum.

Brasilía er með fjögur stig, líkt og Marokkó, fyrir lokaumferðina á meðan Skotar eru í þriðja sæti með þrjú stig.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.