Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 17:38
Brynjar Ingi Erluson
Man City vann tvöfalt
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Kvennalið Manchester City er enskur bikarmeistari þetta árið eftir að hafa rústað Brighton, 4-0, á Wembley í dag.

Alex Greenwood og Bunny Shaw skoruðu báðar og lögðu upp í leiknum. Aoba Fujino og Vivianne Miedema komust einnig á blað.

Man City varð Englandsmeistari á dögunum og bætti síðan bikarmeistaratitlinum við frábært tímabil liðsins í dag.

Þetta er í fjórða sinn sem Man City verður bikarmeistari og í fyrsta sinn sem liðið vinnur bæði Englands- og bikarmeistaratitilinn á sama tímabili.

Shaw átti magnað tímabil. Hún skoraði 21 mark í deildinni og fimm mörk í bikarnum, ásamt því að leggja upp þrjú mörk.




Slapp
banner
banner
banner