lau 31. júlí 2021 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Það er fátt sem fær mann til að trúa"
Xisco, þjálfari Watford.
Xisco, þjálfari Watford.
Mynd: Getty Images
Spá fréttamanna Fótbolta.net fyrir ensku úrvalsdeildina er byrjuð að rúlla. Nýliðum Watford er spáð neðsta sæti deildarinnar.

Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Símanum, gefur sitt álit á öllum liðum deildarinnar hér á Fótbolta.net. Nýverið greindum við frá því að enski boltinn yrði áfram hjá Símanum.

„Það er fátt sem fær mann til að trúa að Watford geti aftur byggt upp lið sem nær nokkrum samfelldum árum í Premier League, eins og hafði verið þegar að liðið fór niður 2020," segir Tómas um þá gulu.

„Þeim hefur þó tekist á ótrúlegan hátt að halda leikmanni eins og Ismaila Sarr sem verður að springa út með látum í vetur ef Watford á ekki að falla. Að fá menn eins og Joshua King og Danny getur verið tvíeggja sverð, þeir búa vissulega að reynslu úr deildinni en hvað hafa þeir nákvæmlega upp á að bjóða núna? Watford mætir svo með enn einn óþekktan þjálfara til leiks í Xisco og ætli hann verði ekki rekinn í október eins og vill nú oft verða hjá þeim gulu."

Síðar í dag verður sagt frá því hvaða lið endar í 19. sæti í spá Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner