Arnór Borg í FH (Staðfest)

Arnór Borg Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Borg Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Borg Guðjohnsen hefur fengið félagaskipti í FH frá Víkingi. Hann kemur til FH á láni og klárar tímabilið í Hafnarfirðinum.
Fótbolti.net greindi frá því fyrst í gær að leikmaðurinn væri á leið til FH á láni.
Arnór hefur verið varamaður í toppliði Víkings í Bestu deildinni á tímabilinu en hann hefur aðeins byrjað tvo leiki og komið tólf sinnum inn á sem varamaður.
Hann er í leit af fleiri mínútum og það kom fram í Innkastinu á dögunum að hann gæti farið á lán frá Víkingum, eins og núna hefur orðið raunin.
Arnór er 22 ára og kom til Víkings frá Fylki eftir tímabilið 2021. Hjá Víkingi hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp tvö í 28 deildar- og bikarleikjum.
FH losnaði úr félagaskiptabanni fyrir helgi en Arnór er annar leikmaðurinn sem félagið fær til sín eftir það. Hinn leikmaðurinn er Grétar Snær Gunnarsson og þá er sá þriðji á leiðinni því Viðar Ari Jónsson er líka að koma.
FH er að berjast um að komast í Evrópukeppni fyrir næsta tímabil en liðið er sem stendur í sjötta sæti Bestu deildarinnar.