Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
banner
   mið 31. júlí 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Auglýsti sjálfan sig á LinkedIn og fékk samning
Mynd: Keciorengucu
Enski varnarmaðurinn Steven Caulker hefur samið við Keciorengucu sem leikur í B-deildinni í Tyrklandi, en samningur hans gildir út tímabilið.

Caulker fór fremur óhefðbundna leið að því að finna sér nýtt félag en hann setti auglýsingu inn á samfélagsmiðilinn LinkedIn og stóðu viðbrögðin ekki á sér.

Á endanum samdi hann við Keciorengucu í B-deildinni í Tyrklandi, en þetta er sextánda félagið sem hann mun spila fyrir á ferlinum.

Hann spilaði áður með félögum á borð við Cardiff, Liverpool, Southampton og Tottenham.

Félagaskipti Caulker til Liverpool eru oft rædd sem ein furðulegustu skiptin undir stjórn Jürgen Klopp. Hann var fenginn á láni í janúar árið 2016 og var notaður sem framherji.

Varnarmaðurinn hefur þá spilað fyrir landslið Englands og Síerra Leóne. Hann skoraði í eina landsleik sínum með Englandi í 4-2 tapi gegn Svíþjóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner