Fotbolti.net
31.07.26 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Zerbi: Virði ósk Romero að vilja fara

De Zerbi: Virði ósk Romero að vilja fara
Canon

Mynd: EPA

Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, mun að öllum líkindum yfirgefa félagið í sumar.

Romero hefur verið orðaður í burtu frá félaginu og Roberto de Zerbi segist virða hans ákvörðun að vilja fara frá félaginu.
„Ég var með milljón einstaklingsfundi þegar ég kom hingað fyrst. Leikmenn sögðu mér sínar hugmyndir. Ég sagði: 'Hjálpið mér að halda okkur uppi og ég hjálpa ykkur að fara'. Ef þið viljið ekki hjálpa mér verðið þið með mér undir vatni," sagði De Zerbi.

„Eftir undanúrslitin (á HM) vorum við í samskiptum en ég hringdi aldrei til að sannfæra hann um að vera áfram. Ég bar virðingu fyrir því sem hann sagði. Romero er einn besti miðvörður heims en að lokum sagðist ég vilja virða ósk leikmannsins."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.