31.07.26 - 09:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hinrik svekktur með tíðindi af Þrótti

Þórður Einarsson með svörtu derhúfuna. Við hlið hans er Kristján Kristjánsson, formaður fótboltadeildar Þróttar, með rauða derhúfu og trefil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinrik var hjá Þrótti áður en hann fór svo til ÍA og í kjölfarið til Noregs.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Þróttur Reykjavík tilkynnti í gær að Þórður EInarsson væri að láta af störfum hjá félaginu eftir færsælt starf á undanförnum árum.
Hann gegndi mikilvægu hlutverki í uppbyggingu barna- og unglingastarfs félagsins. Honum er í tilkynningu Þróttar m.a. hrósað fyrir starf sitt og er bent á aukinn fjölda leikmanna úr röðum Þróttar sem hafa verið valdir í unglingalandslið Íslands og fjölda leikmanna sem hafa skilað sér upp í meistaraflokk félagsins.

Atvinnumaðurinn og U21 landsliðsmaðurinn Hinrik Harðarson, sem uppalinn er hjá Þrótti, er svekktur með þessi tíðindi. Hinrik, sem spilar með Odd í Noregi, skrifar eftirfarandi við tilkynningu Þróttar á Facebook:
„Slæmar fréttir að missa færasta þjálfara landsins."
Tilkynning Þróttar
Þórður Einarsson, yfirþjálfari Knattspyrnufélagsins Þróttar, lætur nú af störfum hjá félaginu eftir farsælt starf á undanförnum árum.
Þórður hefur gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu barna- og unglingastarfs félagsins og lagt sitt af mörkum við að styrkja faglegt umhverfi leikmanna, þjálfara og starfsins í heild. Á þeim tíma sem Þórður hefur starfað hjá félaginu hefur félagið náð eftirtektarverðum árangri í barna- og unglingastarfi. Þar má sérstaklega nefna aukinn fjölda leikmanna úr röðum Þróttar sem hafa verið valdir í unglingalandslið Íslands.
Þá hefur einnig verið ánægjulegt að sjá hvernig fleiri iðkendur úr yngri flokkum félagsins hafa skilað sér áfram inn í meistaraflokka félagsins. Sú þróun endurspeglar það öfluga starf sem unnið hefur verið innan félagsins og þann grunn sem lagður hefur verið að frekari uppbyggingu til framtíðar.
Ennfremur vill félagið þakka Þórði sérstaklega fyrir aðkomu hans að einstaklega vel heppnuðum framkvæmdum við Þróttheima og aðalvöll félagsins á starfstíma hans hjá félaginu. Mikill sómi er af þeim framkvæmdum, enda hafa þær heppnast einstaklega vel í alla staði og eru mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.
Knattspyrnufélagið Þróttur vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Þórðar fyrir vel unnin störf, metnað, fagmennsku og framlag hans til félagsins. Við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni og þökkum fyrir samstarfið.