Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. ágúst 2021 08:54
Elvar Geir Magnússon
Allt klappað og klárt í kaupum Man Utd á Ronaldo
Ronaldo er orðinn leikmaður Manchester United.
Ronaldo er orðinn leikmaður Manchester United.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur fengið portúgalska sóknarleikmanninn Cristiano Ronaldo en búið er að ganga frá öllum málum varðandi kaup félagsins á stórstjörnunni.

Á föstudaginn tilkynnti United um kaupin en nú er buið að ganga frá öllum formsatriðum og þessi 36 ára leikmaður formlega orðinn leikmaður United.

Ronaldo hefur skrifað undir tveggja ára samning við United með möguleika á því að framlengja um eitt ár til viðbótar.

Hann skoraði 118 mörk í 292 leikjum síðast þegar hann var hhá United, áður en hann yfirgaf fyrir Real Madrid 2009.

Í dag er gluggadagurinn. Lokað verður fyrir félagaskipti klukkan 22:00 í kvöld og Fótbolti.net fylgist grannt með öllu sem gerist.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner