Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 31. ágúst 2021 12:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo kostar 12,5 í Fantasy
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er genginn í raðir Manchester United og í kjölfarið á þeim skiptum var næsta skref fyrir stjórnendur ensku draumaliðsdeildarinnar (Fantasy Premier League) að bæta Ronaldo við leikinn.

Margir hafa beðið eftir því að geta keypt Ronaldo í leiknum og sett hann í liðið sitt.

Ronaldo er nú mættur í leikinn og er skráður sem framherji og kostar hann 12,5 milljónir. Hver spilari fær 100 milljónir til að kaupa 15 leikmenn og velur svo ellefu sem eru inn á í hverri umferð.



Fantasy deild Domino's og Fótbolti.net
Enski boltinn er kominn á siglingu eftir sumarfrí og þrjár umferðir búnar. Fantasy deild Fótbolti.net verður á þessu tímabili unnin í samstarfi við Dominos, talning hófst í þriðju umferð.

Ásamt veglegum vinningum í lok tímabils mun stigahæsti þátttakandi hvers mánaðar fá 40.000 kr gjafabréf hverju sinni frá Dominos. Aldrei er því of seint að skrá sig til leiks.

Næsta umferð hefst eftir landsleikja hlé, laugardaginn 11. september.

Til að skrá sig í fantasy deild Dominos þarf að nota kóðann zfezga.

Smelltu hér til að skrá þig í Fantasy deild Dominos.
Athugasemdir
banner
banner