Kennie Chopart yfirgefur KR (Staðfest)

Kennie Chopart.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kennie Chopart.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Danski varnarmaðurinn Kennie Chopart hefur yfirgefið herbúðir KR en félagið staðfestir þessi tíðindi í dag.
Kennie kom til KR frá Fjölni árið 2016 og var fyrirliði liðsins á nýafstaðinni leiktíð.

„Við þökkum Kennie fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni," segir í tilkynningu KR.
Kennie er 33 ára gamall hægri bakvörður sem getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum. Hann er uppalinn hjá Esbjerg en hefur leikið á Íslandi nánast samfleytt frá 2012.
Hann kom fyrst hingað til lands til að spila með Stjörnunni og lék hann þar við góðan orðstír. Hann fór svo í Fjölni og þaðan í Vesturbæjarstórveldið.
Upp á síðkastið hefur Kennie verið orðaður við Fram en Rúnar Kristinsson, fyrrum þjálfari KR, er tekinn þar við stjórnartaumunum. Hann hefur einnig verið bendlaður við FH og Valsmenn, og verður fróðlegt að sjá hvað gerist.