Ólína Sif framlengir við Fram (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Ólína Sif Hilmarsdóttir er búin að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Fram og er nú samningsbundin félaginu út leiktímabilið 2025.
Ólína Sif, fædd 2001, er uppalin hjá Fram en hefur einnig leikið fyrir Fjölni á ferlinum.
Hún spilaði alla leik Fram í Lengjudeildinni í sumar er liðið endaði með 22 stig úr 18 umferðum, og skoraði í þeim fjögur mörk.
Ólína er mikilvægur hlekkur í liði Fram og verður spennandi að fylgjast með þróun hennar í íslenska boltanum.
„Það er mikið gleðiefni að uppalinn Framari sé að blómstra hjá liðinu. Við fögnum því mikið að halda Ólínu áfram og hlökkum til að fylgjast áfram með þessu litríka ólíkindatóli," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.