Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 31. desember 2019 16:53
Brynjar Ingi Erluson
Benfica kaupir Weigl frá Dortmund (Staðfest)
Julian Weigl er farinn til Benfica
Julian Weigl er farinn til Benfica
Mynd: Getty Images
Portúgalska félagið Benfica hefur samið við Borussia Dortmund um þýska miðjumanninn Julian Weigl en þetta staðfestir þýska félagið á heimasíðu sinni.

Weigl er 24 ára gamall og kom til Dortmund frá 1860 München árið 2015 en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu síðasta árið.

Hann bað Dortmund um leyfi til að fara til Benfica og samþykkti þýska félagið beiðni hans.

Benfica hefur samið við Dortmund um kaupverð og gengur hann til liðs við portúgalska liðið á morgun.

Weigl á fimm landsleiki að baki með þýska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner