Reynsluboltinn Pétur Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari HK. Hann verður aðstoðarmaður hjá öðrum Skagamanni, Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem er aðalþjálfari.
Á þjálfaraferlinum hefur Pétur meðal annars þjálfað meistaraflokka KR og Fram. Þá var hann aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar með íslenska landsliðið.
Í fyrra þjálfaði hann 2. flokk en hann hefur einnig þjálfað sama aldursflokk hjá Breiðabliki.
Á leikmannaferlinum var hann einn besti leikmaður Íslands og lék meðal annars með Feyenoord í Hollandi og Antwerpen í Belgíu. Hann lék 41 A-landsleik.
HK-ingar höfnuðu í níunda sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra, aðeins stigi fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir