Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   þri 10. apríl 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bayern og PSG spyrjast fyrir um Kenedy
Mynd: Getty Images
Bayern München og Paris Saint-Germain eru meðal knattspyrnufélaga sem hafa sýnt Kenedy áhuga að undanförnu.

Kenedy er 22 ára leikmaður Chelsea og hefur gert góða hluti síðan hann kom til Newcastle á lánssamningi í janúar.

Kenedy er brasilískur kantmaður sem getur einnig spilað sem sókndjarfur bakvörður. Hann á 27 leiki að baki fyrir aðallið Chelsea síðan hann kom fyrir rétt tæpum þremur árum.

Sky Sports heldur því fram að PSG og Bayern hafi bæði sent Chelsea fyrirspurn um hvort leikmaðurinn gæti verið seldur fyrir rétt verð.

Bayern þarf að finna staðgengla fyrir Arjen Robben og Franck Ribery, sem verða báðir samningslausir í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner