Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fim 10. ágúst 2017 22:47
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Hörður og félagar mæta Watford
Hörður Björgvin Magnússon og hans menn mæta Watford
Hörður Björgvin Magnússon og hans menn mæta Watford
Mynd: Getty Images
Dregið var í aðra umferð í enska deildabikarnum í kvöld en fjölmargir Íslendingar koma þar við sögu. Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Bristol City mæta Watford á Vicarage Road.

Birkir Bjarnason og félagar hans í Aston Villa mæta Wigan sem féll úr Championship-deildinni á síðustu leiktíð. Jóhann Berg Guðmundsson og hans menn í Burnley heimsækja Blackburn.

Axel Andrésson og Jón Daði Böðvarsson leika með Reading gegn Millwall.

Aron Einar Gunnarsson og hans menn í Cardiff City mæta þá Burton Albion. Ef Gylfi Þór Sigurðsson verður áfram í Swansea, sem verður að teljast ansi ólíklegt, þá mætir liðið MK Dons.

Umferðin fer fram 20. ágúst næstkomandi.

Drátturinn:

Barnsley v Derby or Grimsby
Aston Villa v Wigan
Sheff Utd v Leicester
Blackburn v Burnley
Doncaster v Hull
Middlesbrough v Scunthorpe
Huddersfield v Rotherham
Stoke v Rochdale
Newport v Leeds
Newcastle v Nottingham Forest
Accrington v West Brom
Bolton v Sheffield Wednesday
Carlisle v Sunderland
Reading v Millwall
Birmingham v Bournemouth
MK Dons v Swansea
Fulham v Bristol Rovers
Southampton v Wolves
Cardiff v Burton
Brighton v Barnet
Cheltenham v West Ham
Charlton v Norwich
Bristol City v Watford
Ipswich v Crystal Palace
Brentford v QPR
Athugasemdir
banner