Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
„Markmiðið er að komast í umspil og fara upp“
Bestur í Mjólkurbikarnum: Töfrar gegn einu besta liði landsins
Haraldur Einar: Hefði ekkert verið hrikalegt að vera áfram í FH
Gaman að vera hluti af sérstökum díl í íslenskri knattspyrnu
Súrsæt tilfinning eftir sigur - „Getum betur og eigum að gera betur“
Varð aldrei stressaður - „Leikurinn gat farið hvernig sem er“
Hetja Garðbæinga: Þetta var helvíti laust en inn fór hann
Rúnar Páll kaldhæðinn: Ég fæ alltaf spjald - Elska þessa nýju línu
Rúnar: Viktor er markaskorari af guðs náð
Arnar: Erum búnir að misstíga okkur í tvígang og gerum það aftur hér
Gregg Ryder svekktur: Guy þarf að vera ofarlega á vellinum
Dóri skýtur á fyrrum lærisvein: Fannst Wöhlerinn dýfa sér
Leið eins og í Keanu Reeves mynd - „Serbinn þarf bara aðeins að róa sig“
Axel urðaði yfir Patrik - „Bara ástríða"
Damir: Ekki sama þegar einhver er að meiða liðsfélaga minn viljandi
Aron Elís um vítaspyrnudóminn: Hann rænir upplögðu marktækifæri og það er bara rautt spjald
Haddi: Við eigum mögulega að fá 2-3 víti
Arnar Gunnlaugs: Hann hefði örugglega getað dæmt fleiri víti
„Þetta er eiginlega nýtt sport sem maður þarf að venjast“
Brjálaður út í dómgæsluna - „Algjörlega úr takt við leikinn“
   mán 13. október 2014 14:10
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi: Það eru fávitar úti um allt
Tómas Ingi Tómasson.
Tómas Ingi Tómasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 árs landslið Íslands gerði markalaust jafntefli við Dani í fyrri leik liðanna um sæti á EM á næsta ári. Íslenska liðið spilaði gríðarlega þéttan varnarleik en einhverjir gagnrýndu leikstílinn eftir leik.

Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 sport, fór meðal annars mikinn á Twitter og hætti á samskiptamiðlinum í kjölfarið. Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðsins, skaut á Hörð í viðtali við Fótbolta.net í dag.

,,Það eru til fávitar út um allt og það eru ekki allir sammála því hvernig við spilum. Það skiptir okkur ekki máli þó að einn maður út í bæ missi sig á samfélagsmiðli. Hann gerði sjálfan sig mest að fífli. Við vorum sáttir og það skiptir kannski mestu máli," sagði Tómas Ingi við Fótbolta.net í dag.

,,Við þurfum að spila sterkan varnarleik á móti þessu liði. Þeir skoruðu 37 mörk í tíu leikjum eða 3,7 mörk í leik. Þeir eru góðir fram á við en líka sterkir í vörn."

Íslenska liðið æfði inni í Egilshöll í dag vegna kulda. ,,Við erum að fara að labba í gegnum taktík sem væri leiðinlegt að gera úti í kulda. Við erum að hugsa um strákana, að þeir hafi það gott og enginn verði veikur af því að við stóðum úti í frosti."

Leikurinn hefst klukkan 16:15 á Laugardalsvelli á morgun en miðasala er í gangi á midi.is. Tómas Ingi hvetur sem flesta til að mæta á völlinn.

,,Ég vona að allir komi á leikinn hjá okkur. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskan fótbolta. Íslenska landsliðið í dag er skipað strákum sem fóru í lokakeppnina og þessir strákar eru að gera frábært mót líka. Það væri draumur að fara alla leið en til þess þurfum við virkilegan stuðning."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner