Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 15. febrúar 2018 14:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte fékk Man Utd treyju - Mourinho áritaði hana
Mynd: GettyImages
Antonio Conte sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag, fyrir leik Chelsea gegn Hull í FA-bikarnum annað kvöld.

Athyglisverðir hlutir gerðust á þessum blaðamannafundi.

Ítalskir fjölmiðlamenn voru þangað mættir og afhentu þeir lana sínum, Conte, Manchester United treyju sem stjóri United, Jose Mourinho hafði áritað. Að Mourinho skyldi árita treyjuna sem er merkt Conte, komst í fréttirnar í síðasta mánuði.

Mourinho hló þegar hann sá nafn Conte á bakinu.

Conte og Mourinho voru býsna duglegir að skjóta á hvorn annan í gegnum fjölmiðla í síðastliðnum mánuði. Þeir hafa þó grafið stríðsöxina, í bili að minnsta kosti.

Hér að neðan má sjá þegar Conte fékk treyjuna afhenta í dag.






Athugasemdir
banner
banner
banner