Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   þri 19. maí 2015 10:58
Magnús Már Einarsson
Ramsey heldur áfram með QPR (Staðfest)
Mynd: Getty Images
QPR hefur staðfest að Chris Ramsey verði áfram knattspyrnustjóri félagsins.

Ramsey tók við þegar Harry Redknapp sagði upp störfum í febrúar síðastliðnum.

Ramsey náði ekki að bjarga QPR frá falli en liðið situr í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar fyrir lokaumferðina.

Forráðamenn QPR hafa hins vegar trú á Ramsey og hann hefur nú skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner