Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 20. janúar 2018 17:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Okkur tókst ekki að halda uppteknum hætti
Mynd: Getty Images
„Við spiluðum okkar alvöru leik í fyrri hálfleiknum, mikill hraði og góðar sendingar. Við ætluðum að halda uppteknum hætti í seinni hálfleiknum en okkur tókst það ekki," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal eftir 4-1 sigur á Crystal Palace í dag.

Arsenal var komið í 4-0 eftir 22 mínútur.

„Það var mikill hraði í okkar leik til að byrja með sem var gott. Við erum eina liðið sem sigrar Palace í síðustu 12 leikjum þeirra."

Alexandre Lacazette skoraði fjórða mark Arsenal og Wenger telur að það komi til með að vera mikilvægt.

„Það hefur truflað Lacazette að skora ekki, svo þetta er léttir. Framhaldið verður mjög erfitt en spennandi líka."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner