Selfoss sigraði ÍBV 4-2 í Lengjubikar kvenna í kvöld en leikið var á Selfossi.
Guðmunda Brynja Óladóttir og Donna Henry skoruðu báðar tvö mörk fyrir Selfoss. Shaneka Gordon skoraði tvö mörk fyrir Eyjastúlkur.
Guðmunda Brynja Óladóttir og Donna Henry skoruðu báðar tvö mörk fyrir Selfoss. Shaneka Gordon skoraði tvö mörk fyrir Eyjastúlkur.
Selfoss endaði í 3. sæti í A-deild Lengjubikarsins með níu stig og mætir Stjörnunni í undanúrslitum á laugardag.
Breiðablik og Þór/KA eigast við í hinum undanúrslitaleiknum en ÍBV og Fylkir sátu eftir og komust ekki áfram.
Selfoss 4 - 2 Selfoss
Mörk Selfoss: Guðmunda Brynja Óladóttir 2 og Donna Henry 2
Mörk ÍBV: Shaneka Gordon 2
Athugasemdir