Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mán 23. apríl 2018 21:27
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Þór og ÍR áfram - Heimaleikir við HK og FH
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór hafði betur gegn Dalvík/Reyni er liðin mættust í Mjólkurbikarnum.

Leikið var í Boganum og komust heimamenn í tveggja marka forystu fyrir leikhlé.

Jakob Snær Árnason gerði þriðja markið undir lokin áður en Kristinn Þór Björnsson klóraði í bakkann.

Jón Gísli Ström gerði þá eina mark leiksins er ÍR sló Augnablik úr leik. Aron Skúli Brynjarsson og Kári Ársælsson voru reknir af velli í uppbótartíma.

Bæði lið eiga heimaleiki í 32-liða úrslitum. Þór mætir HK og ÍR spilar við FH.

Þór 3 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Alvaro Montejo Calleja ('16)
2-0 Aron Kristófer Lárusson ('34)
3-0 Jakob Snær Árnason ('87)
3-1 Kristinn Þór Björnsson ('90)

ÍR 1 - 0 Augnablik
1-0 Jón Gísli Ström ('26, víti)
Rautt spjald: Aron Skúli Brynjarsson, ÍR ('93)
Rautt spjald: Kári Ársælsson, Augnablik ('94)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner